Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur ráðstafað 200 milljón kr. viðbótarframlagi til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða á árinu 2020 með hliðsjón af vinnu stjórnar sjóðsins frá úthlutun ársins 2020 í mars sl.

Með fjárveitingunni, sem er hluti af sérstöku tímabundnu fjárfestingarátaki stjórnvalda vegna COVID-19 faraldursins, verður unnt að hraða uppbyggingu innviða á ferðamannastöðum um allt land sem stuðla að öryggi ferðamanna og verndun náttúru landsins.

Alls hljóta 15 verkefni, til viðbótar við þau 33 verkefni sem tilkynnt var að fengju styrk úr sjóðnum í mars sl., brautargengi. Um er að ræða verkefni víðsvegar um landið sem sóttu um í sjóðinn við síðustu úthlutun en náðu ekki fram að ganga. Stærstur hluti úthlutunarinnar, eða 43%, rennur til verkefna á Norðurlandi eystra. Þá renna 28% til verkefna á Suðurlandi.

Ferðamálastofa mun á næstunni hafa samband við styrkþega og gera við þá samninga um framkvæmd verkefnanna.

UmsækjandiUpplýsingar um verkefniðLandsvæðiStyrkupphæð
Hjarðarhagi ehfTorfhúsin í Hjarðarhaga: Bætt
aðgengi fyrir ferðamenn.
Austurland1.243.100
Skógræktarfélag ReykjavíkurTengileið Mógilsá –
Kollafjarðará
Höfuðborgarsvæðið17.000.000
AkureyrarbærStígagerð og brúun í
fólkvangnum á Glerárdal frá
bifreiðastæði að Lamba (skála
ferðafélags Akureyrar)
Norðurland eystra21.485.000
LanganesbyggðHafnartangi á Bakkafirði –
áningarstaður við ysta haf
Norðurland eystra30.000.000
NorðurþingBifröst við Heimskautsgerði –
velkomin
Norðurland eystra35.000.000
Sveitarfélagið HornafjörðurGöngu- og hjólastígur milli
Svínafells og Skaftafells
Suðurland12.000.000
VestmannaeyjabærMarkviss uppbygging
gönguleiðar með vesturströnd
Heimaeyjar
Suðurland6.180.000
VestmannaeyjabærLagfæringar á gönguleið í
Dalfjalli
Suðurland13.000.000
Fannborg ehfÁningarstaður við GýgjarfossSuðurland2.412.620
Katla Jarðvangur ses.Aukið öryggi við útsýnisstopp
hjá Eyjafjallajökli
Suðurland3.512.800
SkálholtÞorláksleið,
gönguleiðaverkefni
Suðurland19.000.000
SuðurnesjabærAðkomusvæði við
Skagagarðinn, nýr
ferðamannastaður
Suðurnes11.680.000
SuðurnesjabærGöngustígur frá Kirkju að höfn
í Garði
Suðurnes3.040.000
Eyja-og MiklaholtshreppurÚtisvæði við Gestastofu
Snæfellsness
Vesturland7.607.000
DalabyggðMinningarreitur um
sagnaritarann Sturlu
Þórðarson