Viðtalstími bæjarfulltrúa verður í dag mánudaginn 30. september að Ólafsvegi 4. Ólafsfirði frá kl. 16:30-17:30.

Að þessu sinni taka þau Nanna Árnadóttir, S. Guðrún Hauksdóttir og Jón Valgeir Baldursson á móti íbúum.

Íbúar Fjallabyggðar eru hvattir til að koma og hitta bæjarfulltrúa og ræða málefni sveitarfélagsins.