Félagsmálanefnd Fjallabyggðar leggur til við bæjarráð að gerð verði breyting á 7. lið húsreglna Skálarhlíðar á Siglufirði, sem er svo hljóðandi: ,,Reykingar eru ekki heimilar í sameiginlegu rými Skálarhlíðar”.

Breytingartillagan er svo hljóðandi: ,,Reykingar eru stranglega bannaðar inn í íbúðum og í sameiginlegu rými Skálarhlíðar”.

Auk þess er lagt til breytingar á 1. lið, “Sérstaklega skal gæta að húsfriði milli klukkan 22:00 og 07:00”. Var 23:00 og 07.00.

Við bætist 12. liður: 12. “Ef ágreiningur verður varðandi ofangreint verður send áminning sem er undanfari riftunar”.