Á 656. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar var lagt fram erindi Vegagerðarinnar dags. 11.06.2020, þar sem fram kemur að Vegagerðinni hefur borist erindi Valtýs Sigurðssonar stjórnarformanns f.h. Leyningsáss ses. þar sem óskað er eftir því að hlé verði gert á vegaframkvæmdum í Skarðsdal á meðan málið verður skoðað í heild af hagsmuna- og fagaðilum.

Afrit var sent á Elías Pétursson bæjarstjóra og stjórnarmann í Leyningsási ses.. Vegagerðin er bundin samningi við verktaka sem tók að sér framkvæmd verksins árið 2017 og er verktaki að undirbúa lokaframkvæmdir eftir vetrarhlé.

Vegagerðin óskar eftir afstöðu Fjallabyggðar til erindis Leyningsáss ses. sem allra fyrst, þar sem Fjallabyggð er landeigandi, stóð fyrir deiliskipulagi og veitti framkvæmdaleyfi.

Einnig lagt fram erindi Valtýs Sigurðssonar formanns stjórnar f.h. Leyningsás ses. dags. 02.06.2020.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að vinna umsögn og leggja fyrir bæjarráð.

Beiðni Leyningsáss ses um frestun framkvæmda við Skarðsveg má lesa: HÉR

Mynd/Steingrímur Kristinsson