Margir setja sér markmið um áramótin og oft á tíðum er það til að bæta lífsstíl sinn á einhvern hátt.
Hver þekkir ekki reykingamann sem gefur sér það áramótaheit að hætta að reykja.
í dag gefst þeim sem vilja hætta að reykja kostur á hjálp frá vefsíðunni Reyklaus.is
Síðan veitir þeim tækifæri til að fá stuðning og aðstoð við að hætta að reykja. Þetta er ókeypis, gagnvirk, nettengd þjónusta.
Á síðunni eru upplýsingar um leiðir til að hætta að reykja og gefin tækifæri til að taka ýmis próf.
Einnig er hægt að skrá sig á síðuna og fá þá sendan einstaklingsmiðaðan stuðning í tölvupósti, aðgang að dagbók, gestabók og umræðuvettvang þar sem hægt er að deila reynslu sinni og fengið stuðning frá öðrum sem eru í sömu aðstæðum.
Hringdu í Reyksímann 800 6030 eða sendu póst á reyklaus@reyklaus.is ef þig vantar frekari aðstoð.
Myndir: pixabay