Kvenfélag Hríseyjar hefur haft nóg að gera undanfarið. Þriðjudaginn 7. október stóðu félagskonur að vinakaffi í tilefni af Viku einmanaleikans.

Salurinn í Hlein var fullur af lífi og gleði og um fimmtíu eyjaskeggjar komu saman og nutu samverunnar. Á boðstólum var dásamlegt kaffibrauð ásamt kaffi og safa fyrir yngri gestina.

Dröfn Teitsdóttir, gjaldkeri félagsins, sagði að börnin hefðu spilað og skemmt sér, sum farið út í gott veður til að leika sér, á meðan hinir fullorðnu sátu og spjölluðu saman. Hún bætti við að það hefði verið sönn ánægja að sjá hve margir lögðu leið sína á viðburðinn og að slíkar samverustundir minntu á mikilvægi þess að hittast, hlæja saman og styrkja tengslin í samfélaginu.

Þennan dag blöstu svo bleikar slaufur við Hríseyingum sem félagskonur höfðu hengt á ljósastaura víðsvegar um þorpið. Slaufurnar eru seldar í Centro á Akureyri og rennur ágóðinn óskiptur til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis.

„Í tilefni af Bleikum október vildum við sýna stuðning í verki og lífga upp á umhverfið í leiðinni með þessum fallegu bleiku slaufum. Við settum eina slaufu í hverja götu og vonum að fleiri fyrirtæki og félög á svæðinu taki þátt í þessu frábæra framtaki,“ sagði Dröfn að lokum í viðtali við hrisey.is.

Myndir/hrisey.is