Lögreglan á Norðurlandi eystra varar við slæmu veðurútliti framundan, með mjög hvassri norðvestanátt og snjókomu á svæðinu.

Veðurofsinn hefst í kvöld og mun standa fram á miðjan dag á morgun, laugardag.

Vert er að nota daginn í dag og huga að lausum munum og jafnvel jólaskrauti.

Reikna má með að vegir teppist og ekki mun viðra til ferðalaga. Eigendur báta og annarra eigna við sjó og hafnir eru beðnir um líta eftir eigum sínum,

þar sem norðvestanátt er víða til vandræða við þessar aðstæður segir á facebooksíðu lögreglunnar.