Líkt og undanfarin ár verður Ungmennafélagið Glói með hlaup fyrir börn á 17. júní og fer það fram á Rammalóðinni líkt og síðustu ár.

Hlaupið er fyrir börn 6 – 11 ára, fædd 2014 – 2019 og hefst kl. 11.30. Tveir og tveir árgangar munu hlaupa saman.

Vonumst til að sjá sem flesta mæta til að taka þátt og til að hvetja hlaupagarpana til dáða segir á facebooksíðu Glóa.


Mynd/Umf Glói