Matvælastofnun varar við einni framleiðslulotu af Malt og appelsín í dós frá Ölgerðinni vegna glerbrots. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna af markaði í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.  

Innköllunin á einungis við um eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Egils
  • Vöruheiti: Malt og appelsín
  • Best fyrir dagsetning: 02.08.21
  • Pökkunardagur: 02.11.20
  • Lotunúmer: 02L20307015730
  • Strikamerki: 5690541004800
  • Nettómagn: 0,5 l
  • Framleiðandi: Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf.
  • Dreifing: Verslanir um allt land

Viðskiptavinir sem keypt hafa umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu eða skiptum á samskonar vöru. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður gæðadeildar Ölgerðarinnar í síma 621 5110.

Ítarefni

Skoða á mast.is