Í gær var útgáfuhóf í Gránu, sem er eitt húsa Síldarminjasafns Íslands á Siglufirði.

Tilefnið var útgáfa bókar sem nefnist “Siglufjörður. Ljósmyndir / Photograps 1872-2018”. Bókin er gefin út í tilefni 100 ára kaupstaðarafmælis og 200 ára verslunarafmælis Siglufjarðar.

Höfundar bókarinnar eru starfsfólk Síldarminjasafnsins, Anita Elefsen safna- og sagnfræðingur, Steinunn María Sveinsdóttir sagnfræðingur og Örlygur Kristfinnsson fyrrum safnstjóri. Útgefandi er Síldarminjasafn Íslands.

Bókin er framlag Síldarminjasafnsins til samfélagsins.

Lesnir voru valdir kaflar úr bókinni, sagt frá tilurð hennar og vinnsluferli og sýndar myndir sem fylgja þeim köflum sem lesnir voru.

Á eftir var boðið upp á léttar veitingar. Fjöldi manns var í hófinu, sem fór vel fram.

 

Anita Elefsen safnstjóri

 

Fjöldi manns mætti í útgáfuhófið

 

Guðný Róbertsdóttir og Örlygur Kristfinnsson

 

Anita Elefsen

 

Örlygur Kristfinnsson les upp úr bókinni

 

Steinunn María Sveinsdóttir sagnfræðingur

 

Bókin er til sölu og fór fjöldi manns með eintak heim, enda bókin eiguleg og hentar vel til jólagjafa

 

Veglegar veitingar voru á boðstólnum

 

Myndir: Kristín Sigurjónsdóttir