Ef einstaklingar telja sig eða börn sín geta verið veik af mislingum, á að hringja í síma 1700 eða á heilsugæslustöð. Ekki  koma beint á heilsugæslustöðvar eða sjúkrahús.

Til hvaða ráðstafana er verið grípa á Íslandi gegn mislingum?

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum þá hafa 4 einstaklingar greinst með mislinga á Íslandi. Tveir fullorðnir einstaklingar hafa greinst og tvö börn og heilsast öllum vel. Allir einstaklingarnir óbólusettir eftir því sem best er vitað og smituðust allir í flugi Iceland Air Connect þann 15.2.2019. Þetta sýnir að mislingar eru mjög smitandi og smitast auðveldlega á milli einstaklinga við litla snertingu.

Sóttvarnalæknir í samvinnu við heilsugæsluna, Landspítalann, Læknavaktina og fleiri aðila hefur unnið að eftirfarandi sóttvarnaráðstöfunum sem miða að því að hindra frekari dreifingu sýkingarinnar:

  1. Sóttkví. Allir einstaklingar sem eru óbólusettir og komist hafa í snertingu við mislingasmit er beðnir um halda sig heima frá degi 6 til dags 21 eftir smit. Á þessum tíma geta veikindi komið fram og eru einstaklingar þá smitandi og verða reyndar smitandi um einum sólahring áður en veikindin byrja. Ekki þarf að setja bólusetta einstaklinga í sóttkví.
  2. Bólusetning gegn mislingum. Ef einstaklingur sem verður fyrir smiti er bólusettur innan 72 klst frá smiti þá eru góðar líkur á því að einstaklingurinn veikist ekki.
    Mælt er með bólusetningu óbólusettra fjölskyldumeðlima þeirra sem komast í snertingu við mislingasmit því það mun koma í veg fyrir áframhaldandi útbreiðslu.
    Bólusetningu má gefa börnum allt niður í 6 mánaða aldur en árangurinn er ekki alveg ótvíræður á aldrinum 6-12 mánaða og þarf því að bólusetja þessi börn aftur við 18 mánaða aldur.
  3. Meðhöndlun veikra. Ef einstaklingar telja sig eða börn sín geta verið veik af mislingum þá er fólk beðið um að koma ekki beint á heilsugæslustöðvar eða sjúkrahús heldur hafa fyrst samband símleiðis í síma 1700 eða við sína heilsugæslustöð.
    Þar fær fólk ráðleggingar og verður séð um að senda lækni heim til viðkomandi ef ástæða þykir til, til að greina og staðfesta sýkinguna. Einnig verður hægt að senda viðkomandi á sjúkrahús til meðferðar samkvæmt fyrirfram ákveðnum leiðbeiningum sem gefnar verða.
  4. Upplýsingar um mislinga og mislingasmit.
    Til að fá upplýsingar um mislinga og mislingasmit má hringja í síma 1700 og einnig til heilsugæslustöðva.

Mislingar

 

Sóttvarnalæknir telur litlar líkur á útbreiddum faraldri hér á landi ef öllum ofangreindum varúðarráðstöfunum verður fylgt. Að auki er rétt að benda á að almenn þátttaka í bólusetningum hér á landi er um 90-95% sem á að duga til að koma í veg fyrir útbreiddan faraldur.

Algengar spurningar um mislinga:

Hverjir geta verið smitaðir?

Einstaklingur sem smitast af mislingum getur smitað aðra 6 dögum eftir að hann smitast og í 15 daga frá þeim tíma. Því þarf hann að vera í sóttkví á þessum tíma.

Hverja er ráðlegt að bólusetja?

  • Fólk sem ekki hefur verið bólusett við mislingum eða fengið sjúkdóminn og hefur umgengist einstakling sem mögulega er smitandi.
  • Hægt er að bólusetja börn frá 6 mánaða aldri hafi þau verið í umgengni við einstakling sem mögulega var smitandi.
  • Ef barn er undir 6 mánaða og er útsett fyrir smiti þarf að tala við smitsjúkdómalækni barna vegna mögulegrar Immunoglobulin gjafar í æð.

Bólusetning þarf að fara fram innan 72 klukkustunda frá mögulegu smiti.

Ekki má bólusetja þungaðar konur og þá sem eru með alvarlegt eggjaofnæmi.

Hvernig veit ég hvort ég hafi fengið bólusetningu?

  • Þeir sem eru fæddir eftir 1975 eru líklegast bólusettir nema foreldrar þeirra hafi hafnað bólusetningu.
  • Allir fengu bólusetningarskírteini sem oft eru til í fórum foreldra þeirra. Ef bólusetning er skráð í kringum 12 ára aldur er það líklegast mislingabóluseting.
  • Hægt er að sjá bólusetningar sem gefnar voru eftir að farið var að skrá bólusetningar í rafrænan bólusetningargrunn inn á mínum síðum Heilsuvera.is eða á island.is
  • Þeir sem ekki eru vissir með þetta eða hafa áhyggjur geta leitað til heilsugæslunnar og fengið bólusetningu.

Hverjir hafa fengið mislinga?

Þeir sem eru fæddir fyrir 1970 hafa líklegast fengið mislinga.

Hver eru einkenni mislinga?

Einkenni mislinga koma fram um 10-12 dögum eftir smit og geta verið mismikil eftir einstaklingum. Þau byrja oft með flensulíkum einkennum þ.e. hita, nefrennsli, sviða í augum, hósta, bólgnum eitlum og höfuðverk. Á þriðja eða fjórða degi veikindanna koma í flestum tilfellum fram útbrot sem ná yfir allan líkamann og standa í 3-4 daga eða þar til sjúkdómurinn fer að réna.

Mislingar eru greindir með nefkokssýni er tekið á veirupinna. Svar tekur 3 – 4 klukkustundir.  Áreiðanleiki sýnatöku er mikill ef einkenni eru komin en ekki ef einkenni eru ekki til staðar.

Hvað á að gera ef einkenna verður vart?

Þeir sem telja sig, eða börn sín, vera með mislinga eiga að hringja á sína heilsugæslu eða í síma 1700. Ekki mæta á heilsugæslustöð eða sjúkrahús.

Hringdu í síma 1700 ef þú þarft ráðgjöf varðandi mislinga. Ekki koma á heilsugæslustöð.