Fasteignamiðlun kynnir eignina Norðurtún 13, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0817 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Norðurtún 13 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0817, birt stærð 246.3 fm.

Sjá myndir: HÉR

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@fasteignamidlun.is.

Einbýlishús á góðum stað með frábæru útsýni og gróinn skjólgóður garður
Efri hæð samanstendur af anddyri, eldhúsi, baðherbergi, þremur svefnherbergjum, búri/geymslu, sturtuaðstöðu, stofu, borðstofu og sjónvarpsrými. Gengið er inn í rúmgott anddyri með góðu skáparými og hvítum flísum á gólfi. Inn af anddyri er flísalagt hol. Stofa, borðstofa og sjónvarpsrými liggur saman í opnu rými með miklu gluggarými með frábæru útsýni og birtu. Eldhús er aflokað inn í miðju rýminu með timbur veggjum sem ná ekki upp í loft því vel hægt að opna á milli. Eldhúsið er með hvítum innréttingum og beyki borðplötu. Gott skápapláss er með efri og neðri skápum og ljósum flísum á milli. Hvítar flísar liggja inn í eldhús og í sjónvarpsrými en parket er á stofu og borðstofu. Hvítur stál hringstigi með timbur tröppum liggur niður á neðri hæð í holi, staðsettur þannig að hann taki sem minnst pláss af rýminu sem hann er í. Svefnherbergisálma er í norðurhluta eignarinnar með þremur mismunandi stórum herbergjum. Hjónaherbergi er stærst með fataskápum og korkflísum á gólfi. Svefnherbergi 2 er einnig með fataskáp og parket á gólfi. Svefnherbergi 3 er minna einnig með parketi á gólfi. Baðherbergi með flísum á veggjum og gólfi er einnig í svefnálmu. Þar eru hvítar innréttingar með efri og neðri skápum en einnig háum skápum. Baðkar, vaskur og klósett.Búr/geymsla er inn af holi með góðu skápa og hillu plássi. Einnig er gott pláss fyrir auka ísskáp og frystikistu. Viðbyggingu var bætt við eignina út af búri/geymslu og útbúið rými með sturtuklefa, vask og geymslurými. Svalahurð liggur út á pall þar sem er heitur pottur. Einnig er svalahurð úr holi út á pallinn en þar hefur verið gert skjólgott rými með hitalampa. Pallurinn er skjólgóður og gróðri vaxinn garður í kring.
Neðri hæð eignarinnar samanstendur af anddyri, þvottahúsi, tveimur stórum svefnherbergjum, baðherbergi og geymslu. Gengið er inn í mjög rúmgott anddyri með góðu fatahengi og flísum á gólfi. Inn af anddyri er þvottahús með góðu skápa- og borðplássi. Parket er á gólfi í holi þar sem hring stigi kemur niður. Baðherbergið er með flísalögðum sturtuklefa, innréttingu, klósetti, vask og handklæða ofn. Flísar eru á gólfi. Svefnherbergin eru mis stór. Stærra herbergið er mjög rúmgott og með miklu gluggaplássi og flísum á gólfi. Hitt svefnherbergið er minna með opnanlegum glugga, fataskáp og flísum á gólfi. Mjög rúmgóð geymsla er á neðri hæð með góðu hilluplássi og flot á gólfi. Bílskúr er flotaður með hillu og skápum. Einnig er vaskur með heitu og köldu vatni. 

Efri hæð:
Anddyri: Rúmgott með ljósum flísum á gólfi og fataskáp. 
Eldhús: Beyki innréttingar með hvítum hurðum og viðarborðplötu. Gott skápapláss í U-laga eldhúsi 
Stofa/borðstofa: Stofa og borðstofa liggja saman í stóru björtu rými með parket á gólfi. 
Herbergi: Svefnherbergi eru þrjú á efri hæðinni sem eru misstór með parket á gólfi en korkflísum á hjónaherbergi. Fataskápar eru í tveimur þeirra.  
Baðherbergi: er flísalagt í hólf og gólf með ljósum flísum. Innrétting er hvít með góðu skápaplássi og hvítri borðplötu. Baðkar, gólftengt klósett og vaskur. 
Geymsla: Geymsla/búr er með góðu hilluplássi og háum skáp. Einnig er op upp á loft sem er yfir nánast allri eigninni því mikið geymslupláss. 

Neðri hæð:
Hol: Opið hol er þegar komið er niður stigann með parket á gólfi. 
Herbergi: herbergin eru tvö á neðri hæðinni bæði mjög rúmgóð með flísum á gólfi. Annað er með fataskáp. 
Baðherbergi: baðherbergið er flísalagt á gólfi og sturtuklefa með gler hurðum. Hvít innrétting með vask og efri skápum. Stór hvítur handklæðaofn. 
Geymsla: Stór og rúmgóð geymsla með miklu hilluplássi. Gólf er flotað.
Þvottahús: Beyki innréttingar með góðu skápaplássi og ljósri borðplötu. Rúmgott rými með góðu plássi fyrir þurrkgrindur, þvottavél og þurrkara. Gólf er flotað.   
Anddyri: er stórt með flísum á gólfi og góðu opnu fatahengi. Mjög rúmgott . 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,4% – 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Fasteignamiðlun ehf. – Grandagarður 5 – 101 Reykjavík – Arndís Erla Jónsdóttir löggiltur fasteignasali