Nú er átakinu Göngum í skólann formlega lokið og tóku allir bekkir Grunnskóla Fjallabyggðar þátt þetta árið. 

Nemendur voru hvattir til að ganga eða hjóla  og má segja að allir hafi staðið sig vel.

Við Norðurgötu á Siglufirði var það 5. bekkur sem hlaut gullskóinn.

Við Tjarnarstíg í Ólafsfirði var það 10. bekkur sem hlaut gullskóinn (97,8%) og 7. bekkur silfurskóinn (97,5%).

Við Tjarnarstíg – 10. bekkur – Gullskór

Sjá fleiri myndir: Hér
Myndir/ Grunnskóli Fjallabyggðar