Pizzastangir með pepperoni

  • 1 rúlla pizzadeig
  • 3-4 tsk ítölsk hvítlauksblanda
  • 1/2 tsk red pepper flakes
  • 6 msk rifinn parmesan
  • 3 msk ólífuolía
  • 1 bréf pepperoni (um 120 g)
  • rúmlega 1/2 poki rifinn mozzarella (um 120 g)

Hitið ofninn í 200°.

Blandið ítalskri hvítlauksblöndu, red pepper flakes og rifnum parmesan saman í skál.

Rúllið deiginu út (eða fletjið það út í ferhyrning ef notað er heimagert) og stráið helmingnum af kryddblöndunni yfir deigið.

Skerið pepperoni í fernt og dreifið yfir helminginn af deiginu. Brjótið helminginn sem er ekki með pepperoni yfir pepperoni-helminginn, þannig að fyllingin verði inn í. Skerið deigið í stangir og snúið hverri stöng í nokkra hringi. Penslið yfir brauðstangirnar með ólífuolíu og stráið kryddblöndu yfir.

Færið brauðstangirnar yfir á bökunarplötu með bökunarpappír og snúið krydduðu hliðinni niður. Penslið með olíu og stráið kryddblöndu yfir (þannig að það er olía og krydd bæði undir og yfir brauðstöngunum) og bakið í 8-10 mínútur, eða þar til brauðstangirnar eru orðnar gylltar og fallegar.

Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit