Í nótt lýsti Ríkislögreglustjóri í samráði við Lögreglustjórann á Norðurlandi eystra yfir óvissustigi á Tröllaskaga vegna úrkomu á Norðurlandi eystra.

Slökkviliðsmenn í Slökkviliði Fjallabyggðar voru að störf­um í alla nótt bæði á Siglufirði og á Ólafsfirði, ásamt björg­un­ar­sveitar­fólki frá Strák­um á Sigluf­irði og Tindi í Ólafs­firði. Dælt hefur verið upp úr kjöll­ur­um húsa Í Ólafsfirði og á Siglufirði síðustu tvo sólahringa.

Þá er einnig lýst yfir hættustigi í Kinn og Útkinn vegna úrkomu og skriðuhættu. Tekin hefur verið ákvörðun um að rýma eftirtalda bæi í Útkinn: Björg, Ófeigsstaði, Rangá, Engihlíð og Þóroddsstaði.

Veðurstofa Íslands hefur sett út gula viðvörun vegna úrkomu á Norðurlandi eystra og gildir hún til hádegis í dag sunnudaginn 3. október.

Veginum í Útkinn frá gatnamótum við Norðausturveg hefur verið lokað vegna aurskriðna sem þar hafa fallið.

Borist hafa upplýsingar um grjóthrun á Siglufjarðarvegi í Almenningum vestan Siglufjarðar og eru vegfarendur beðnir um að hafa varann á séu þeir á leið þar um.

Mynd/ Slökkvilið Fjallabyggðar