Alls voru 229.747 einstaklingar skráðir í Þjóðkirkjuna þann 1. desember síðastliðinn skv. skráningu Þjóðskrár Íslands. Næst kemur Kaþólska kirkjan með 14.650 meðlimi og Fríkirkjan í Reykjavík með 10.030 meðlimi.
Fjölgun mest í siðmennt
Frá 1. desember sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt eða um 562 meðlimi. Í Ásatrúarfélaginu hefur fjölgað um 366 meðlimi. Mest fækkun var í þjóðkirkjunni eða um 1.407 og í zuism fækkaði um 332 meðlimi.
Alls eru rúmlega 7% landsmanna skráð utan trú- og lífsskoðunarfélaga
Alls voru 27.728 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. desember sl. eða 7,5% landsmanna. Alls eru 55.319 landsmanna með ótilgreinda skráningu eða 15,0%.
Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum þann 1. desember sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2018 og 2019.