Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) hefur hafið samstarf við íslenska hugbúnaðarfyrirtækið RetinaRisk um reglubundna augnskimun fyrir einstaklinga með sykursýki, með aðstoð gervigreindar. Lausnin gerir kleift að framkvæma skimun á heilsugæslu í nærsamfélagi í stað þess að senda skjólstæðinga til Reykjavíkur í augnskoðun.

Áætlað er að með notkun RetinaRisk lausnarinnar sparist að meðaltali um 99% af kostnaði miðað við að skjólstæðingar leiti til Reykjavíkur í reglubundna augnskoðun. Að auki sparist hundruð ferðalaga á ári hverju, sem auðveldar fólki með sykursýki að fá þjónustuna sem hluta af sinni reglubundnu sykursýkiseftirfylgni á nærheilsugæslu.

RetinaRisk lausnin hefur þegar verið tekin í notkun hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) með góðum árangri, og nú fá íbúar á Norðurlandi tækifæri til að njóta sama ávinnings.

Samstarfið með HSN er stórt framfaraskref í að færa þjónustuna nær fólki.

„Við vitum að ferðalög til höfuðborgarinnar eru bæði tímafrek og kostnaðarsöm fyrir sjúklinga, og með þessari lausn getum við sparað bæði einstaklingum og heilbrigðiskerfinu mikla fjármuni. Fyrst og fremst snýst þetta þó um að bæta lífsgæði fólks með sykursýki með því að gera skimunina aðgengilegri,“ segir Ægir Þór Steinarsson, forstjóri RetinaRisk.

„Við erum stolt af því að fylgja í kjölfarið á þessari nýbreytni og innleiða lausn sem hefur þegar sannað sig á Suðurnesjum. Með því að nýta gervigreind tryggjum við að íbúar á Norðurlandi fái sama aðgengi að gæðaþjónustu og aðrir landsmenn, án þess að þurfa að leggja á sig langar og erfiðar ferðir. Þetta er mikil búbót fyrir okkar fólk,“ segir Guðrún Dóra Clarke, framkvæmdastjóri lækninga hjá HSN.