Miðvikudaginn 26. nóvember verður fyrirlestur fyrir foreldra í Bergi á Dalvík á vegum Netvís, Netöryggismiðstöðvar Íslands.

Fyrirlesturinn hefst kl. 16:30 og ber heitið Stolin athygli leitar eiganda síns! og fjallar um hvernig ýmis forrit og öpp sem við notum dags daglega á samfélagsmiðlum eru hönnuð til að grípa athygli okkar, barna og fullorðinna, og halda henni jafnvel tímunum saman.

Einnig verða kynnt góð ráð til að fylgjast með skjátíma barna, aldurstakmörk á samfélagsmiðlum og ýmis heilræði til foreldra.

Mynd/Netvís