Tónlistarkonan GDRN og djassleikarinn Tómas R. Einarsson hafa sameinað krafta sína og sent frá sér breiðskífuna GDRN & Tómas R.. Samstarfið er afrakstur margra ára vangaveltna og varð endanlega að veruleika eftir að þau komu saman á djasshátíð í Garðabæ fyrir tveimur árum. Valin lög af plötunni eru í spilun á FM Trölla.

Platan inniheldur 10 lög, öll samin í sameiningu. Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir syngur og leikur á fiðlu, en Tómas R. Einarsson sér um bassaleik. Með þeim spila Ómar Guðjónsson á gítar, Magnús Jóhann á píanó og Magnús Trygvason Eliassen á trommur. Þá kemur César Hechavarría, kúbanskur tresgítarleikari, við sögu í einu laganna.

Hljóðheimur plötunnar er mótaður af Bergi Þórissyni, ljósmyndun er í höndum Baldurs Kristjáns, og Þormar Melsted sá um hönnun. Útkoman er lífræn og spennandi plata þar sem popp, djass og tilfinningarík lagasmíð mætast á jafnvægisríkan hátt.