Álfhildur Leifsdóttir fulltrúi Vinstri grænna og óháðra í Skagafirði er afar ósátt við fyrirhugaða áætlun sveitarfélagsins varðandi félagsheimilið Ketilás í Fljótum.
Ritaði hún meðal annars eftirfarandi færslu á facebook síðu sína og gaf Trölla.is góðfúslegt leyfi til að birta hana.
Það er því sorgleg staða að kvenfélagið Framtíð í Fljótum hefur þurft að ráða sér lögfræðing til að mæta sveitarfélaginu fyrir Héraðsdómi í vegferð sveitarfélagsins til að skýra eignarhald á félagsheimilum. Kvenfélög áttu gríðarlega stóran þátt við byggingu þessara húsa á sínum tíma eins og allir sem þekkja söguna vita. Við sameinginu hreppanna á sínum tíma virðist því miður ekki hafa verið gengið frá eignarhaldi húsanna með réttum hætti, en þó tekið fram að eignarhaldið ætti að vera óbreytt. Sjá meðfylgjandi mynd.
Eins og rakið er í aðdraganda tillögu VG og óháðra fyrir síðasta byggðaráðsfund þá var skilningur minn og að mér skilst kvenfélagskvennanna líka miðað við það sem kom fram á íbúafundi í Fljótum í liðinni viku, að eignarhaldið yrði skýrt í samvinnu sveitarfélagsins og kvenfélagsins þar sem liggur fyrir í gögnum hver eignarhluti Framtíðar er, en því miður var honum ekki þinglýst á sínum tíma. En sú varð ekki framvindan, sveitarfélagið rekur málið fyrir Héraðsdómi á forsendum hefðaréttar og krefst fulls eignarhalds á félagsheimilinu Ketilási.
Vissulega þarf að fara ákveðnar leiðir þegar eignarhald er óskýrt eins og að auglýsa í Lögbirtingi eftir kröfum. En þegar aðilar eins og kvenfélagið gefa sig fram og hafa gögn undir höndum sem sýna fram á eignarhluta þeirra, þætti mér eðlilegt að mál sem þetta sé unnið í sátt með lögformlegum leiðum.
Á byggðaráðsfundi síðastliðinn föstudag lögðu VG og óháð fram eftirfarandi tillögu:
“Að eignardómsmál á grundvelli hefðarréttar, þar sem krafist er fulls eignarhalds sveitarfélagsins, verði umsvifalaust fellt niður. Jafnframt að eignarhald Kvenfélagsins Framtíðar í Ketilási verði skýrt á grundvelli þeirra gagna sem fyrir liggja og að eignarhlutar verði skráðir og þinglýstir í samræmi við það, með eðlilegum og gagnsæjum hætti.”
Þessari tillögu hafnaði meirihluti ásamt Byggðalista.
Sjá nánar: mál nr 6: https://www.skagafjordur.is/…/byggdarrad-skagafjardar/5730



