Heilbrigðiseftirlit Suðurlands fór í eftirlit í Ferðaþjónustuna í Efstadal 2 nýlega til að sannreyna úrbætur sbr. bréf dags 18. júlí sl. Samkvæmt úttekt Heilbrigðiseftirlits Suðurlands er úrbótum lokið og heimilt að hefja starfsemina að nýju sbr. neðangreint.

Farið var í eftirfarandi úrbætur:

  1. Alþrif og sótthreinsun á veitingasvæði, hurðum, göngum og salerni. Kælar tæmdir og þrifnir.
  2. Mat í opnum umbúðum var fleygt.
  3. Gangar, loft, handrið og wc málað.
  4. Stétt þrifin með 80 °C heitu vatni og Virkioni dreift.
  5. Að auki var búið að loka fyrir alla lausagöngu dýra, líka hundsins. Lausaganga verður ekki leyfð fyrr en handþvottaaðstöðu hefur verið komið upp fyrir gesti og aðskilnaður á milli dýra og veitingasvæða efldur.

Þrátt fyrir að handþvottaaðstöðu hafi verið komið upp fyrir utan veitingaaðstöðuna verður ekki um lausagöngu dýra að ræða um svæðið að svo komnu máli  á næstunni skv. ákvörðun staðarhaldara. Ísbúðin hefur jafnframt verið endurnýjuð og heimilt að opna hana að nýju. Framleiðsla á ís hefur verið heimiluð og var sannreynt með sýnatöku að framleiðslan uppfyllir örverufræðilegar kröfur, samkvæmt niðurstöðum rannsóknarstofu.

Ítarefni

 

Frá Matvælastofnun