Veiga Grétarsdóttir, kajakræðari og transkona frá Ísafirði rær nú á kajak umhverfis Ísland og safnar áheitum fyrir Píeta samtökin, sem sinna þjónustu við fólk í sjálfsvígshættu, með sjálfsskaða og aðstandendur. Veiga er væntanleg til Siglufjarðar um kvöldmatarleytið í dag, mánudaginn 5. ágúst.

Ekki er hægt að tímasetja nákvæmlega komu hennar til Siglufjarðar á þessu stigi, því för hennar ræðst algjörlega af veðri, vindum og sjávarstraumum.

Veiga lagði af stað frá Ísafirði þann 14. maí síðastliðinn og fer rangsælis um landið, á móti straumnum og er þetta í fyrsta sinn sem einhver ræðst í slíkt afrek. Veiga áætlar að ljúka hringnum um miðjan ágúst.

Veiga mun halda fyrirlestur á morgun, þriðjudaginn 6. ágúst kl. 20:00 í Ráðhússalnum Gránugötu 24 á Siglufirði, þar sem hún mun fjalla um reynslu sína af vanlíðan, sjálfsvígshugsunum, kynleiðréttingarferlinu og hvernig kajaksiglingar hafa hjálpað henni til að finna tilgang með lífinu.

Í för með Veigu er Skagfirðingurinn Óskar Páll Sveinsson sem er að vinna að heimildarmynd um ferðalag Veigu.

Frekari upplýsingar um Veigu og verkefnið hennar má finna á eftirfarandi vefslóðum: https://www.veiga.is og https://pieta.is/a-moti-straumnum/

Tökum vel á móti Veigu og fjölmennum á bæjarbryggjuna á Siglufirði á morgun 5. ágúst.

Þeir sem áhuga hafa á að sigla á móti Veigu og fylgja henni til hafnar eru hvattir til að setja sig í samband við Lindu Leu Bogadóttur, markaðs- og menningarfulltrúa Fjallabyggðar í síma 861-0268 eða á netfangið lindalea@fjallabyggd.is.

 

Forsíðumyndin er skjáskot úr kynningarmyndbandi á veiga.is