Fjöldi manns var samankominn við félagsheimiðið á Hvammstanga þegar eldurinn var tendraður við upphaf fimm daga hátíðíðarinnar Eldur í Húnaþingi. Er þetta í 16. sinn sem sem hátíðin er haldin.

Fjöldi manns var við opnunarhátíðina

 

Eins og segir á heimasíðu hátíðarinnar “Eldur er meira en bæjarhátíð. Eldur er stundin þar sem við segjum frá því hver við erum og það er síbreytilegt – á Eldi fögnum við fortíð okkar og fjárfestum í framtíð okkar í Húnaþingi vestra.

Þetta er stund þar sem við komum saman og einfaldlega fögnum því að vera til á sama tíma. Stund þar sem við njótum samvista við fjölskylduna, hittum gamla og nýja vini, hlustum á góða tónlist, fáum innblástur og njótum sumarsólarinnar. Eldur hefur verið haldin árlega frá því 2003 og er tilhlökkunarefni meðal bæði íbúa og gesta”

Fagnaðarfundur

 

Greta Clough, Listrænn stjórnandi Elds í Húnaþingi 2018 sagði í setningarræðu sinni að um 1600 klst. hafi farið í undirbúning Eldsins og starf sjálfboðaliða væri undirstaða hátíðarinnar, var þeim þakkað með kröftugu lófataki.

FM Trölli var með beina útsendingu frá opnunarhátíðinn og fréttaritari Trölla tók myndir af stemmingunni.

Trölli.is mun vera með frakari fréttir frá Eldi í Húnaþingi á næstu dögum. FM Trölli sendir út beint frá völdum viðburðum á hátíðinni.

 

Gunnar Smári Helgason sá um beina útsendingu á FM Trölla

 

Sigurvald Ívar Helgason bróðir Gunnars Smára sá um tæknimálin á svæðinu

 

Haganlega smíðað skilti fyrir Eldinn

 

Birgir Karlsson var mættur með myndavélina, auk hans eru þarna Birta Þórhallsdóttir, Ingibjörg Rebekka Helgadóttir, Dóra Eðvaldsdóttir og María Guðrún Theodórsdóttir

 

Greta Clough, Listrænn stjórnandi Elds í Húnaþingi 2018

 

Fylgst með

 

Vinir hittast

 

Gunnar Smári tekur viðtal við æskuvin sinn og frænda Eðvald Daníelsson

 

Félagsheimilið á Hvammstanga

 

Fyrir þremurum árum greindist Ólöf Loftsdóttir með parkinson. Eftir greininguna fór hún að sauma bútasaums teppi til að viðhalda fínhreyfingu í fingrum. Hún selur þessi fallegu teppi til styrktar Velferðarsjóði V-Hún.

 

Glatt á hjalla

 

Boðið var upp á ljúffenga súpu

 

Regnbogi yfir Ráðhúsinu

 

Börninn fengu að njóta sín

 

Fólk streymir að

 

Greta Clough

 

Súpan smakkast vel

 

Fjöldi listamanna komu að opnunarhátíðinni

 

Body Rhythm Factory heilluðu tónleikagesti, jafnt börn sem fullorðna

 

Danska tónlistartríóið Body Rhythm Factory kom með verðlaunaverk sitt til Hvammstanga nú í ár og buðu upp á sýningu fyrir alla aldurshópa. Þau unnu YAM verðlaunin fyrir bestu sýninguna, en þetta eru stærstu verðlaun heimsins sem veitt eru flytjendum tónlistar fyrir unga áhorfendur.

 

Body Rhythm Factory spiluðu á allskonar “öðruvísi” hljóðfæri

 

Verið að leika með vatn

 

Frétt og myndir: Kristín Sigurjónsdóttir