Konudagurinn er á næsta leiti en hann ber upp á 22. febrúar að þessu sinni. Líkt og undanfarin ár býður Knattspyrnufélag Fjallabyggðar upp á konudagsblóm til sölu í aðdraganda dagsins.

Í ár verður félagið með nellikubúnt á 3.500 krónur. Í verðinu er innifalin heimsending að morgni konudags og verður keyrt út um alla Fjallabyggð.

Þeir sem vilja panta geta sent skilaboð á Facebook-síðu félagsins með nafni viðtakanda og heimilisfangi. KF sér svo um að koma blómunum til skila á réttum tíma að morgni konudagsins.

Mynd: pixabay.com