Í dag, laugardaginn 14. febrúar er Valentínusardagurinn, einnig nefndur Valentínsdagur.

Valentínusardagurinn er haldinn hátíðlegur 14. febrúar ár hvert og tengist ást, vináttu og hlýhug milli fólks. Þótt dagurinn sé í dag einkum þekktur fyrir blóm, súkkulaði og kort á rætur hans að rekja til kristins píslarvotts, heilags Valentínusar, sem talinn er hafa lifað á 3. öld í Rómaveldi. Samkvæmt einni sögn vígði hann pör í leyni á tímum þegar slíkt var bannað, og varð því síðar verndardýrlingur elskenda.

Á 14. öld fór dagurinn að tengjast rómantík í Evrópu, meðal annars vegna þeirrar trúar að fuglar hæfu pörun um miðjan febrúar. Á 18. og 19. öld varð algengt að fólk sendi hvort öðru ástarbréf og handskreytt kort á deginum, og úr varð hefð sem lifir enn í dag.

Meðal þess sem er hefðbundið að gera í dag er að senda sínum heittelskaða/sinni heittelskuðu gjafir á borð við blóm og konfekt og láta valentínusar kort fylgja með.

Þessar hefðir eiga uppruna sinn í Bretlandi, Frakklandi og Bandaríkjunum en í öðrum löndum gilda aðrar hefðir og sums staðar er dagurinn helgaður vináttu í stað ástar.

Í löndum þar sem ekki er löng hefð fyrir því að halda Valentínusardaginn hátíðlegan hafa bandarískir siðir gjarnan fylgt þegar venjan er tekin upp.

Valentínusardagur hefur orðið meira áberandi á Íslandi hin síðari ár sem dagur elskenda líkt og tíðkast víða um hinn vestræna heim.

Siðurinn er tiltölulega nýr hér á landi en segja má að samsvarandi ástartjáning hafi tíðkast hér frá örófi alda þegar konur gleðja bónda sinn eða elskhuga á fyrsta degi þorra, bóndadeginum, eða þegar karlar færa konu sinni eða unnustu blóm á konudaginn, fyrsta dag góu.

Mynd: pixabay