„Enemy of the Good“ er nýjasta smáskífan frá dansk/íslenska indie-rokk tvíeykinu Supernatural Suburbia.

Lagið, sem komið er í spilun á FM Trölla, er hraðskreið ballaða af væntanlegri fyrstu breiðskífu sveitarinnar, sem kemur út síðar á þessu ári.

Milli upptökutarna hefur hljómsveitin haldið fjölda tónleika á suðvesturhorni Íslands, bæði á börum, í Norræna húsinu og í hinum ýmsu menntaskólum, en fyrstu tónleikar þeirra í Danmörku voru í Store Vega í janúar síðastliðnum. Þar hituðu þeir upp á  uppseldum tónleikum Mouritz/Hørslev Projektet.


Texti og tónlist: Teitur Magnússon og Tue West
Söngur, gítar, hljómborð og slagverk: Tue West
Söngur: Teitur Magnússon
Upptökustjórn: Tue West
Mix og Master: Tue West
Upptökur fóru fram í: TW Studios – DK – 2025

Streymi: https://supersub.lnk.to/enemy