Siglufjarðarvegur er lokaður um Almenninga nærri Strákagöngum eftir að snjóflóð féll á svæðinu skömmu eftir kvöldmat.

Nokkrir bílar urðu innlyksa vegna flóðsins og eru björgunarsveitir að störfum við að aðstoða vegfarendur og flytja þá til byggða.

Vonsku veður er á svæðinu og Lögreglan á Norðurlandi eystra biður vegfarendur um að fresta ferðalögum og vera ekkert á ferðinni á þar til veður gengur niður.