Aukið endurgreiðsluhlutfall styrkja úr fræðslusjóðunum Landsmennt, Ríkismennt og Sveitamennt átti að lækka á ný um næstu mánaðamót.

Stjórnir sjóðanna Landsmenntar, Sveitamenntar og Ríkismenntar hafa samþykkt að framlengja 90% endurgreiðslu vegna styrkveitinga til 31. desember 2022 og gildir gagnvart námi/námskeiðum sem haldin eru/byrja innan þessa sama tímaramma. 

Vegna áhrifa frá Covid 19 settu fræðslusjóðirnir Landsmennt, Ríkismennt og Sveitamennt af stað átak í fræðslu sem hófst 15. mars 2020. Hluti átaksins fólst í því að endurgreiðsluhlutfall styrkja hækkaði tímabundið úr 75% í 90% hjá bæði fyrirtækjum og til einstaklinga með síðustu lokadagsetningu 30. september 2022  en nú hafa stjórnir sjóðanna ákveðið að halda áfram með allt að 90% endurgreiðsluhlutfall til næstu áramóta.

Breytingar á úthlutunarreglum voru eftirfarandi:

Endurgreiðslur til fyrirtækja vegna kostnaðar við námskeiðahald, voru hækkaðar úr allt að 75% í allt að 90% af styrkhæfum heildarkostnaði. Sveitamennt og Ríkismennt veita 100% styrki til stofnana sveitarfélaga og ríkisstofnana.

Hámarksupphæð einstaklingsstyrkja verður áfram kr. 130.000 á ári miðað við núverandi reglur.  Hlutfalli endurgreiðslu var hins vegar breytt og er 90% í stað 75% af kostnaði við námið.

Tómstundstyrkir sem voru 75% en að hámarki kr. 30.000 á ári eru í sama hámarki og hefðbundnir styrkir, það er kr. 130.000 á ári. Hlutfall endurgreiðslunnar verði sömuleiðis 90% af viðurkenndum kostnaði við námið.

Hægt er að sjá reglur vegna einstaklingsstyrkja hér: Landsmennt – Sveitamennt – Ríkismennt

Hægt er að sjá reglur vegna fyrirtækjastyrkja og styrkja til stofnana sveitarfélaga og ríkisins hér: 

Landsmennt – Sveitamennt – Ríkismennt