Fréttatilkynning vegna ársreiknings Fjallabyggðar 2019

Þann 27. maí sl., var ársreikningur Fjallabyggðar borinn upp og samþykktur á 186. fundi bæjarstjórnar.

Rekstur bæjarsjóðs gekk vel og var betri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir.

Helstu niðurstöður eru eftirfarandi:

  • A – hluti bæjarsjóðs var rekinn með tæplega 267 mkr. afgangi.
  • Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 392 mkr. 2019, en var jákvæð um 279 mkr. árið 2018.
  • Rekstrartekjur A og B hluta námu 3.114 mkr. á árinu 2019, en voru 2.893 mkr. árið 2018.
  • Rekstrargjöld námu 2.536 mkr. en voru 2.432 mkr. árið 2018.
  • Eignir um áramót námu samtals 5.906 mkr. en námu 5.467 mkr. í lok árs 2018.
  • Vaxtaberandi skuldir í árslok náum 348 mkr. en voru 582 mkr. í árslok 2018.
  • Veltufé frá rekstri nam 671 mkr. eða 21.5% af tekjum samanborið við 582 mkr. 2018 (20.1%)
  • Skuldaviðmið er 21,4%, en var 31.8% árið 2018, viðmið samkvæmt sveitastjórnalögum er að hámarki 150%.
  • Eigið fé bæjarsjóðs Fjallabyggðar í árslok nam 3.821 mkr. eða 64.7%, en var 3.327 mkr. eða 60.9% 2018.
  • Ef veltufé frá rekstri væri eingöngu nýtt til greiðslu langtímaskulda tæki það 0,52 ár. að greiða upp langtímaskuldir sveitarfélagsins.
  • Fjárfestingar á árinu 2019 voru 362 mkr. sem er í samræmi við fjárhagsáætlun.
  • Handbært fé í árslok nam 403,5 mkr.
  • Veltufjárhlutfall var 1,42.

Ársreikningurinn sýnir að fjárhagsstaða bæjarsjóðs er traust og rekstur sveitarfélagsins er í mjög góðu lagi, enda aðhald og ráðdeild höfð að leiðarljósi. Niðurstaða sem kemur sér vel á yfirstandandi efnahagslegum óvissutímum.

Elías Pétursson
bæjarstjóri