Matvælastofnun berast ýmsar fyrirspurnir varðandi COVID-19 veiruna og matvæli. Hér að neðan er listi yfir helstu spurningar og svör við þeim. Stofnunin bendir jafnframt á almennar upplýsingar um veiruna á vef landlæknis. Fylgst er með þekkingarþróun á þessu sviði og verða upplýsingar hér uppfærðar eins og við á.

Er hætta á því að matvæli geti borið smit? 

Ekki hefur verið staðfest að smit hafi borist með matvælum. COVID-19 er ekki matarborinn sjúkdómur. Þeir sem eru í sóttkví og með einkenni ættu þó ekki að útbúa mat fyrir aðra.  

Getur veiran borist með ferskum ávöxtum og grænmeti?  

Veiran nær ekki að fjölga sér í ávöxtum og grænmeti, né öðrum matvælum. Hins vegar gæti hún setið á yfirborði eftir úðasmit (hnerra eða hósta frá sýktum einstaklingi) en ekki er vitað hversu lengi. Mjög ólíklegt er þó að hún nái að berast milli landa með ávöxtum og grænmeti. Matvælastofnun hvetur neytendur, nú sem áður, til að skola vel ávexti og grænmeti fyrir neyslu.  

Getur veiran borist með umbúðum matvæla? 

Það er mjög ólíklegt að menn smitist af COVID-19 við snertingu matvælaumbúða. Handþvottur eftir verslunarferð er góð venja. Fylgið leiðbeiningum landlæknis um handþvott og smitvarnir

Ítarefni

Mynd: pixabay