Þjóðleikhúsið hefur valið Fjölnet til að annast rekstur tölvukerfa stofnunarinnar en um er að ræða alrekstur tölvukerfa og þjónustu við starfsmenn.

Þjóðleikhúsið hefur verið leiðandi stofnun á sviði leiklistar á Íslandi allt frá opnun þess árið 1950. Það sýnir fjölbreytt úrval sviðsverka sem er ætlað að höfða til ólíkra áhorfendahópa, með það að markmiði að efla og glæða áhuga landsmanna á list leikhússins og auðga leikhúsmenningu í landinu. Í Þjóðleikhúsinu eru settar á svið framúrskarandi leiksýningar sem skemmta áhorfendum, ögra þeim, vekja þá til umhugsunar og veita þeim innblástur.

Á mynd handsala Tinna Lind Gunnarsdóttir verkefnastjóri Þjóðleikhússins og Sigurður Pálsson framkvæmdarstjóri Fjölnets samninginn.

Fjölnet býður Þjóðleikhúsið velkomið í hóp ánægðra viðskiptavina.

Af: fjolnet.is