Í dag verður þátturinn Tíu Dropar sendur út beint frá Djúpavík á Ströndum.

Leikið verður nýtt lag sem Poppvélin var að senda frá sér auk þess sem Tröllahjónin Gunnar Smári Helgason og Kristín Magnea Sigurjónsdóttir, stjórnendur þáttarins, fara um víðan völl að vanda.

Farið verður yfir helstu fréttir vikunnar á Trölli.is, uppskrift vikunnar verður á sínum stað og allt getur gerst.

Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla á sunnudögum kl. 13. FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga, í Skagafirði, á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim hér á vefnum trolli.is.

Á síðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á síðunni eða hér: Hlusta

Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is