Fræðafélag Siglufjarðar fagnar því að geta blásið til fundar í fyrsta sinn frá því heimsfaraldur hófst.

Næstkomandi sunnudag, 7. nóvember kl. 11:00, stendur félagið fyrir opnum fundi í Bláa húsinu á Siglufirði og verður umfjöllunarefnið að þessu sinni af sögulegum toga.

Endurminningar Hólmfríðar Hjaltason, Tvennir tímar, var fyrst gefin út árið 1949.

Hólmfríður fæddist á Siglufirði árið 1870, hún var alþýðukona sem bjó við sáran skort og vinnuþrælkun hjá vandalausum á uppvaxtarárum sínum í Fljótum í Skagafirði.

Kristín Einarsdóttir flytur erindi um stöðu alþýðukvenna og fátækra á Íslandi þeim tíma sem Hólmfríður var uppi. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, er barnabarn Hólmfríðar og mun hann lesa kafla úr bókinni og taka þátt í umræðum.

Fundurinn er öllum opinn og enginn aðgangseyrir.

Kaffi og léttar veitingar í boði og allri hjartanlega velkomnir