Dansandi Fjallabyggð
Opið dansnámskeið byrjar á sunnudaginn, 7. nóv. n.k.

Stýrihópur um Heilsueflandi samfélag tekur upp þráðinn að nýju og býður íbúum Fjallabyggðar á opið dansnámskeið sem haldið verður í Tjarnarborg.

Námskeiðið verður 5 sunnudagskvöld kl. 20.00 – 21:30, í fyrsta sinn sunnudaginn 7. nóvember nk. Danskennari verður Ingunn Hallgrímsdóttir. Þátttaka er endurgjaldslaus.

Allir velkomnir, ekki er nauðsynlegt að hafa dansfélaga til að mæta.

Dansnámskeiðið er byggt upp á stökum kvöldum þar sem ákveðið þema er hvert kvöld.

Skipulag dansnámskeiðsins verður eftirfarandi:

7. nóvember Gömlu dansarnir

14. nóvember Samkvæmisdansar (jive, cha cha cha og tjútt)

21. nóvember Línudans

5. desember Salsa

12. desember Zumba eða annað eftir áhuga

Ekki er krafist skráningu á námskeiðið en búnir verða til viðburðir á Facebooksíðu Fjallabyggðar fyrir hvert kvöld fyrir sig.

Stýrihópur áskilur sér rétt til að færa til einstök kvöld ef aðstæður gera það óhjákvæmilegt. Breytingar á námskeiðinu ef einhverjar verða, munu verða auglýstar á heimasíðu Fjallabyggðar.

Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

Stýrihópur um Heilsueflandi samfélag í Fjallabyggð.