Þjóðaskrá Íslands hefur gefið út Íbúafjölda eftir sveitarfélögum í mars 2021.

Þar má sjá að íbúum í Fjallabyggð hefur fækkað um 27 manns frá 1. desember 2019. Eru þá íbúar Fjallabyggðar þann 1. janúar 2021, 1980 manns.

Íbúar í Fjallabyggð eftir póstnúmerum:
580                  1.171
581                      10
625                    789
626                      12

Í janúar 2019 birti Ruv.is stutt viðtal við Gunnar I Birgisson þáverandi bæjarstjóra Fjallabyggðar, þar sem haft var eftir honum að hann hafi “svona ákveðnar áhyggjur” af þessu.

Íbúum Norðurlands vestra fjölgar á meðan íbúum Fjallabyggðar fækkar

búum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 558 á tímabilinu frá 1. desember 2020 til 1. maí sl. og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði um 382 á sama tímabili og íbúum Akureyrarbæjar um 34 íbúa. 

Hlutfallslega mest fjölgun í Árneshreppi

Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Árneshrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna fjóra mánuði eða um 15% en íbúum þar fjölgaði þó einungis um 6 íbúa. Næst kemur Helgafellssveit með 
7,7% fjölgun sem er líkt og með Árneshrepp lítilsháttar fjölgun í hausum talið eða um 5 íbúa. 
Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Ásahreppi um 4,7% og Skaftárhreppi um 4,6%.  Þá fækkaði íbúum í 36 sveitarfélögum af 69 á ofangreindu tímabili.  

Fækkun í einum landshluta

Lítilsháttar fækkun varð á Norðurlandi vestra eða um 0,1% sem gera fækkun um 10 íbúa.  Íbúum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um 0,5% eða um 1.207 íbúa og á Suðurnesjum fjölgaði íbúum einnig um 0,5% eða um 131 íbúa.

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2019 og 2020.

Íbúum í Fjallabyggð fækkar