Félagar i Rótarýklúbbi Ólafsfjarðar hafa allt frá stofnun klúbbsins skrifað vikuleg fréttabréf. Einkum fréttir úr bæjarlífinu, bæði til sjávar og sveita.

Veður, aflabrögð, uppskerufréttir og samgöngur eru einskonar leiðarstef í bréfunum, en það er raunar fjallað um allt á milli himins og jarðar í þeim og ná þessi bréf yfir 65 ár.

Þau hafa varðveist ótrúlega vel og hefur tekist að safna þeim saman til geymslu á Héraðsskjalasafni Fjallbyggðar.

Það er hugsanlegt að vanti 3-4 ár, líklega 2 bækur og ef einhver veit um þær þiggjum við upplýsingar með þökkum.

Samþykkt var á hátíðarfundi, fundi nr. 3.000 frá stofnun klúbbsins að koma bréfunum yfir á stafrænt form.

Lítið gerðist í þeim málum fyrr en nú, lokið hafði verið við að skanna nýjustu bréfin ca. 700 stk. Verkið er einfaldlega of stórt til að hægt sé að gera það í sjálfboðavinnu og því var leitað leiða til að geta búið til starf um verkefnið.

Klúbburinn fékk höfðingelgan styrk; 600 þúsund krónur, frá Verkenfasjóði íslenska Rótarýumdæmisins til að þoka málinu áfram.

Klúbburinn er svo í samstarfi við Fjallsali/Pálshús við skönnunina.

Félagið fékk ráðningar styrk frá Vinnumálastofnun til að ráða starfsmann; Jódísi Jönu Helgadóttur í verkið.

Menntaskólinn á Tröllaskaga á sérstakan bókaskanna sem er mikið þarfaþing í svona verkefnum og fær Jódís að nota skannann og er í skólanum við þessa iðju.

Í framtíðinni er svo hægt að hugsa sér að unnt verði að birta þessi bréf á einhverri vefsíðu, t.d. síðu Pálshúss, þar sem verið er að vinna í að setja upp myndasafn. Þá verður sagan til bæði í máli og myndum.

Það á eftir að koma í ljós, en í þessum bréfum er mikil saga og hafa þau oft á tíðum verið notuð í heimildaöflun.

Rafrænu úrgáfur bréfanna eru og verða geymd á 2 stöðum til örryggis, í skýjunum og á lausu drifi. Bækurnar fara svo aftur á héraðsskjalasafnið að aflokinni skönnun.

Á meðfylgjandi myndum má sjá starfsmanninn Jódísi Jönu við vinnu sína.

Myndir og texti: aðsent.