Lagt fram erindi Anítu Elefsen fh. Síldarminjasafnsins, dags. 05.05.2020 á 651. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar er varðar áhrif heimsfaraldurs Covid-19 á starfsemi safnsins.

Óskað er eftir því að sveitarfélagið muni líta til þess að aðgerðir vegna heimsfaraldurs muni styðja við starfsemi safnsins í ljósi þeirra rekstrarerfiðleika sem safnið stendur frammi fyrir m.a. vegna afbókana skemmtiferðaskipa og áætlunar um fækkun gesta sem koma á eigin vegum og bóka ekki fyrirfram.

Áætlað er að tekjutap muni nema 70% af áætluðum tekjum ársins. Óskað er eftir stuðningi í formi beins fjárframlags, sumarstarfsfólks, verkefnastyrks eða samstarfs um sumardagskrá.

Bæjarráð samþykkir að óska eftir umsögn deildarstjóra fræðslu-, frístunda og menningarmála og markaðs- og menningarfulltrúa.