Á 651. fundi bæjarráðs fjallabyggðar var lagt fram erindi Ingvars Ágústssonar f.h. félags eldri borgara á Siglufirði, dags. 11.03.2020 þar sem óskað er eftir styrk til þess að ljúka við gróðurlag púttvallar að upphæð kr. 1.745.000.

Framkvæmdarkostnaður á árinu 2019 vegna jarðvegsvinnu nam kr. 1.727.529 sem greiddur var af félaginu m.a. með styrk úr Samfélagssjóði SPS.

Félagið áætlar að leggja til greiðslu vegna geymsluhúss og annarrar aðstöðu ásamt búnaði við völlinn sem áætluð er kr. 772.471.-

Bæjarráð samþykkir að styrkja Félag eldri borgara til framkvæmda á gróðurlagi púttvallar og felur bæjarstjóra og deildarstjóra stjórnsýslu- og fjármála að koma með tillögu að útfærslu styrks.

Forsíðumyndina tók Steingrímur Kristinsson 28. apríl 2019 þegar fyrsta skóflustungan var tekin við gerð púttvallar fyrir Félag eldri borgara á Siglufirði.

Sjá eldri fréttir um púttvöllinn. Hér