Dagana 16.-28. desember sl. var opnað fyrir tillögur frá almenningi um götuheiti nýrrar götu á gamla malarvellinum, Siglufirði þar sem áformað er að hefja framkvæmdir við nýbyggingar á árinu.

Alls bárust 142 tillögur.

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar þakkar öllum þeim sem lögðu sveitarfélaginu lið í að finna nafn á nýja götu á Siglufirði.

Lagt er til að gatan fái heitið Vallarbraut.