Nú í vikunni hafa verið að greinast ný smit á Akureyri og sem rekja má til grunnskóla bæjarins.

Í gær var fjöldi sýna tekinn og í ljós hefur komið að staðfest eru a.m.k. 14 ný smit, og þau flest hjá aðilum á grunnskólaaldri. Verið er að vinna að rakningu í þessum tilfellum.

Þessi smit ná inn í flesta grunnskólana og eru foreldrar hvattir til að halda börnum sínum til hlés í samskiptum við önnur börn á meðan rakning fer fram og yfirsýn næst, á það einnig við um íþróttaæfingar.

Jafnframt er fólk hvatt til að skrá sig og börn sín í sýnatöku finni það til einkenna.