Lagt fram erindi Guðrúnar Árnadóttur á 306. fundi skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar þar sem óskað er eftir afstöðu sveitarfélagsins til aðgengismála fatlaðra við Siglufjarðarkirkju. Einnig er óskað eftir því að bærinn komi að gerð bílastæðis sem ætlað væri fyrir fatlaða norðan við Kirkjuna þar sem uppkeyrslu rampur fyrir fatlaða er staðsettur.

Þar sem aðgengismál kirkjunnar eru ekki á ábyrgð sveitarfélagsins beinir nefndin því til málsaðila að vísa erindi sínu til sóknarnefndar Siglufjarðarkirkju.