Matvælastofnun varar við neyslu á THS Matcha Green tea powder tedufti vegna aðskotaefna (fjölhringa kolefnissambönd) sem greindust yfir leyfilegum mörkum í vörunni. Fyrirtækið Víetnam market ehf. sem flutti inn vöruna hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna. Heilbrigðiseftirlitið sendi út fréttatilkynningu.

Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um hættuleg matvæli og fóður á markaði.

Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: THS
  • Vöruheiti: Matcha Green Tea Powser
  • Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 24.11.2024
  • Strikamerki: 6922163616734
  • Nettómagn: 80 g
  • Framleiðandi: Fujan Blue Lake Foods Co LTD
  • Framleiðsluland: Kína
  • Innflutningsfyrirtækið: Vietnam Market, Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík
  • Dreifing: Verslanir Vietnam Market, Laugavegi 86-94 og Bankastræti 11, 101 Reykjavík