Æfingar fyrir eldri borgara í þrektækjasal Íþróttamiðstöðvar Húnaþings vestra
Í nóvember verður boðið upp á æfingar í þrektækjasal Íþróttamiðstöðvar á Hvammstanga fyrir eldri borgara undir leiðsögn Sigurbjargar Jóhannesdóttur, íþróttakennara.
Boðið verður upp á 4 skipti:
föstudaginn 4. nóvember
miðvikudaginn 9. nóvember
föstudaginn 18. nóvember
miðvikudaginn 23. nóvember
Æfingar eru frá kl. 11:00 til kl. 12:00 í þrektækjasal á efri hæð.
Æfingar eru þátttakendum að kostnaðarlausu en hámarksfjöldi er 10 manns og því þarf að skrá sig hjá fjölskyldusviði Húnaþings vestra, sími 455 2400 eða henrike@hunathing.is.
Sérstök handavinnukynning í Nestúni
Í dag, mánudaginn 24. október 2022, mun Ragnheiður S. Jóhannsdóttir, handavinnukennari, mæta í föndurstarf í Nestúni kl. 15:00-18:00 og kynna handavinnu eins og hvítasaum, skartgripagerð og jafnvel jólaföndur, allt eftir því hvernig áhugi er.
Dagskrá eldri borgara starfsins er að finna hér dagskra-eldri.pdf