Skíðasvæðið í Skarðsdal verður opnað fimmtudaginn 1. desember.

“Að ýmsu þarf að hyggja áður en svæðið verður opnað” segir Skarðsjarlinn Egill Rögnvaldsson.

Það eru töluverðar viðgerðir á lýsingu á efra svæði, skipt um 5 brotna staura, aðrir staurar réttir af og öll tengibox brotin eftir síðasta vetur, en það eru 22 staurar og 44 kastarar á Bungusvæði og Hálslyftusvæði.

Viðgerð á vatnsbóli fyrir Bungusvæði, viðgerð á á öryggisköplum og fl. og fl.

Samtímis er verið að yfirfara troðara og öllum T-stykkjum (68 höld eru á T-lyftu) skipt út í T-lyftu.

Því miður náðist ekki að klára þær breytingar sem eru fyrirhugaðar á svæðinu en vegur og bílastæði eru langt komin.

Það verður bætt inni-aðstaða á svæðinu fyrir veturinn en það verður sett upp 70 fermetra gámaeinging til viðbótar.

Velkomin í Skarðsdalinn.


Mynd: Skarðsdalur