Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, býður til opinna funda um orkuskipti með áherslu á hlutverk vindorku.

Ráðherra skipaði síðastliðið sumar þriggja manna starfshóp sem fékk það hlutverk að skoða og gera tillögur til ráðherra um nýtingu vindorku, þ. á m. um lagaumhverfi og hvernig verði tekið á ýmsum álitamálum.

Starfshópurinn hefur nú skilað stöðuskýrslu til ráðherra og verða niðurstöður hennar til umræðu á fundunum og fulltrúar starfshópsins til svara um efni skýrslunnar.

Stöðuskýrslan dregur saman helstu álitaefni sem ramma inn umræðuna og boðar ráðherra þess vegna til opinna funda þar sem almenningur fær tækifæri til þess að kynna sér stöðuskýrsluna og eiga beint samtal við starfshópinn og ráðherra, áður en hópurinn skilar formlegum niðurstöðum og tillögum að stefnumótun ríkisins í þessum efnum.

Fundirnir verða haldnir:

24. apríl     Reykjavík, Nauthóll kl. 16:30

                    Hvolsvöllur, Félagsheimilið Hvoll kl. 20:00

3. maí         Akureyri, Hótel KEA Múlabergi kl. 17:00

4. maí         Egilsstaðir, Hótel Hérað kl. 17:00

8. maí         Búðardalur, Dalabúð kl. 20:00

Vindorka – Valkostir og greining

Mynd/aðsend