Laugardaginn 18. desember var haldin hin árlega Ofurganga í Hlíðarfjalli. Það er Skíðafélag Akureyrar sem heldur gönguna sem fer þannig fram að þátttakendur reyna að ganga sem lengst frá kl 10:00 – 14:00. Ef farið er af stað í síðasta hring fyrir kl 14:00 má þó ljúka þeim hring, en hringurinn sem er genginn er um 3,5 km langur. 

Það var Ólafsfirðingurinn Sigurbörn Þorgeirsson, sem ýtti sér heila 18 hringi sem gerðu 60,11 km og tók þetta Sigurbjörn 4 klst og 8 mín rúmar. Mikið afrek að ýta sér alla hringina og ljóst að Bjössi ætlar sér stóra hluti í vetur. 


Mynd af vefsíðu Skíðafélags Ólafsfjarðar