Ærslabelgurinn verið blásinn upp fyrir unga fólkið á Hvammstanga og nágrenni.
Bent er á að ganga vel um og fara eftir reglum. Allir eru á eigin ábyrgð á ærslabelgnum og börn og ungmenni eru á ábyrgð forráðamanna.
- Skóbúnað skal geyma fyrir utan belginn á meðan hoppað er. Ekki er leyfilegt að hoppa á belgnum í skóm.
- Í rigningu og bleytu er ekki æskilegt að hoppa á belgnum, þar sem hann getur orðið mjög sleipur.
- Halda skal svæðinu snyrtilegu. Muna að taka allt með sér þegar farið er; föt, sokka og rusl.
- Sýna hvort öðru tillitssemi og virðingu á belgnum.
Ærslabelgurinn verður uppblásinn frá hádegi til kl. 20:00 alla daga.
Mynd: Húnaþing vestra