Áfram heldur gönguvika Ferðafélagsins Trölla sem hefur tekist vel og verið vel sótt.

Næstu þrjá daga er dagskráin eftirfarandi:

Í dag föstudaginn 16. júlí

Fossabrekkur  Kleifar Ólafsfirði – Héðinsfjörður  Keyrt fram að Kleifum gengið þaðan inn Syðriárdal sem er aðeins á fótinn, fjöllin há og reisuleg til beggja hliða. Í botni dalsins er svo gengið yfir tvær melöldur svokallaðar Fossabrekkur, yfir skarðið og ofaní Möðruvallaskál og þaðan ofaní Héðinsfjörð. Mesta hæð 680m, um 11km og ca 6-7 klst ganga. Erfiðl.stig 2,5 skór. Gangan hefst kl. 16:00 og er mæting við ÚÍÓ húsið í Ólafsfirði.

17. JÚLÍ ( LAUGARDAG )

Hreppsendaársúlur Ólafsfirði  Keyrt fram á heiði, gengið sem leið liggur upp á hrygginn sunnan Súlnanna og þaðan á Lundshnjúk og svo á Súlurnar. ca 7km. Tekur um 4 klst. Mesta hæð 1050m. Erfiðl.stig 3-3,5 skór.  Gangan hefst kl. 10:00 og er mæting við ÚÍÓ húsið í Ólafsfirði.

18. JÚLÍ ( SUNNUDAG )

Hestskarð  Héðinsfjörður – Siglufjörður  Farið er frá Skútudalnum á Siglufirði rétt fyrir innan gangnamunnann, eftir hlykkjóttum slóða uppí skarðið sem er nokkuð bratt, og er í u.þ.b. 500m hæð. Ef veður er gott og fólk tilbúið er hægt að ganga eftir klettabelti og uppá Hestskarðshnjúkinn sem stendur í 855m, eða farið bara beint ofaní Hestdalinn og niður í Héðinsfjörð. Gengið eftir kindaslóða að vegmunna. Ca 3-4 klst. leið og um 4km, erfiðleikastig 2-3 skór. Gangan hefst kl. 10:00 og er mæting við ÚÍÓ húsið í Ólafsfirði.

Sjá nánar á facebooksíðu Ferðafélagsins Trölla.