Kjördæmasambönd Framsóknar hafa ákveðið aðferð við val á framboðslista.
Samstaða var mikil á kjördæmaþingunum um aðferð við val, tillögurnar voru í öllum tilvikum samþykktar með yfir 90% atkvæða.
- Í Norðvesturkjördæmi fer fram póstkosning og munu valdagar standa frá 16. febrúar til og með 13. mars 2021.
- Kosið verður um fimm efstu sætin.
- Kjörskrá lokar 30 dögum fyrir valdag póstkosningarinnar eða fyrir miðnætti laugardaginn 16. janúar 2021.
- Framboðsfrestur rennur út mánudaginn 1. febrúar klukkan 12 á hádegi 15 dögum fyrir valdag.
- Í Norðausturkjördæmi fer fram póstkosning og munu valdagar standa frá 1. mars til og með 31. mars 2021.
- Kosið verður um sex efstu sætin.
- Kjörskrá lokar 30 dögum fyrir valdag póstkosningarinnar eða á föstudaginn 29. janúar 2021.
- Framboðsfrestur rennur út sunnudaginn 14. febrúar klukkan 12 á hádegi 15 dögum fyrir valdag.
Alþingiskosningarnar munu fara fram laugardaginn 25. september 2021.
Skoða allar nánari upplýsingar á framsokn.is