Af framkvæmdum í Fjallabyggð
Talsverðar framkvæmdir á holræsa-, vatnsveitukerfi og viðhald á götum bæjanna hafa verið hér í Fjallabyggð á undanförnum 5 árum, þ.e. 2015 – 2019.
1. Viðhald yfirborðs gatna.
Tekin var upp sú stefna árið 2015, að heilleggja malbik yfir göturnar í stað bútaviðgerða, sem voru langtum dýrari en heillögn malbiks og dugðu oft skammt eins og alþekkt er á höfuðborgarsvæðinu. Meðfylgjandi er kort af báðum bæjarhlutum Fjallabyggðar sem sýnir malbikslagnir á árunum 2015 – 2018 og áætlun fyrir 2019. Kostnaður við yfirlagnirnar er eftirfarandi:
2015 | 85.000.000 |
2016 | 78.000.000 |
2017 | 57.000.000 |
2018 | 59.000.000 |
2019 (áætlun) | 47.000.000 |
Samtals: | 326.000.000 |
2. Holræsi og vatnsveita.
Ákveðið var af fyrrverandi bæjarstjórn, að leysa fráveitumál í Fjallabyggð og núverandi bæjarstjórn tók við keflinu sl. Vor. Verkefnið er eiginlega tvíþætt.
a. Að útrásir holræsa skyldu ná nógu langt út í viðtaka til að fyrirbyggja mengun í höfnum og við strendur. Byggðir hafa verið holræsabrunnar með dælum og fyrsta stigs hreinsun. Reiknað er með að útrásarbrunnum og lögnum verði lokið að mestu í ár, en þetta er stærsta verkefnið í umhverfismálum í sveitarfélaginu.
b. Endurnýjun á holræsalögnum og brunnum í götum voru löngu orðnar tímabærar. Á meðfylgjandi teikningu er sýnt endurnýjun á útrásum og holræsakerfinu.
Þá hafa vatnslagnir einnig verið endurnýjaðar, spindlum fjölgað og vatnsból bæjarhlutanna gerð öruggari. Kostnaður við fráveitu og vatnsveitu er eftirfarandi:
Ár | Fráveita | Vatnsveita |
2015 | 43.000.000 | 3.000.000 |
2016 | 70.000.000 | 0 |
2017 | 47.000.000 | 8.000.000 |
2018 | 25.000.000 | 1.000.000 |
2019 (áætlun) | 120.000.000 | 25.000.000 |
Samtals: | 305.000.000 | 37.000.000 |
Gunnar I. Birgisson
bæjarstjóri
Fylgiskjöl með frétt:
Fráveita-vatnsveita Ólafsfjörður (PDF)
Fráveita-vatnsveita Siglufjörður (PDF)
Malbik Ólafsfjörður (PDF)
Malbik Siglufjörður (PDF)